Wednesday, March 28, 2007

UA-róleg og yfirveguð..

Það var svo sem eins og ég vissi að ég mundi ekki léttast í vikunni. Bæði var helgin ekki nógu góð og líka að ég fór svo mikið niður síðast. Ég er nú bara pollróleg yfir þessu er búin að slaka aðeins á í æfingunum þessa vikuna. Erum að fara keppa um helgina þannig ég er svona að "spara" mig. Þarf að passa á mér hnéið, get ekki keppt ef ég verð búin að þjösnast á því alla vikuna. Sól og blíða úti og mín bara í pilsi...svo gaman þegar það fer að koma svona vorfílingur!!!:) Er á fullu að taka til og ganga frá í vinnunni..á bara 3 daga núna eftir og get ég þá farið að einbeita mér 100% að nýju vinnunni!! Þó ég eigi eftir að sakna þessara vinnu doltið þá verður gott að vera bara á einum stað.
Vildi láta ykkur vita að það er erfiður tími hjá UB þannig ég sendi henni hlýja strauma og treysti á að hún komi til okkar aftur þegar hún tilbúin!!:)

kv. UA...í sólskinsskapi!!

4 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir það mín kæra, þarf á þeim straumum að halda núna. Heittelskaður fer í aðferð í fyrramálið. Kem til baka þegar þessu er lokið öllu saman.

Anonymous said...

Sendi UB góða strauma
Og vorið er já komið loksins enda var maður farinn að bíða eftir því :)

Anonymous said...

Sendum góða strauma úr Borgarfirðinum fröken UB.
Knús og klemm til ykkar allra!

Anonymous said...

Gangi þér vel um helgina kæra UA. Sendi hlýjar kveðjur og orkustrauma til UB.