Monday, January 22, 2007

UA-Helgin..

Þetta var nú bara fínasta helgi...mataræðið fór doltið út um þúfur á lau. fórum á skíði með strákana.... En ég tók með mér skyrdrykk og próteinstöng þangað, þannig það var nokkuð saklaust. En fengum okkur svo afgang af þorramatnum þegar við komum glorhungruð heim af skíðunum. Vinkona mín var svo að skíra á lau og við kíktum á hana en þá kom í ljós að þau höfðu látið pússa sig saman í leiðinni og tók vinkonan bara á móti manni í brúðakjólnum...já þetta var skooo óvænt en gleðilegt!!:) Fékk mér smá brauðrétt hjá henni en sleppti kökunum...en basicly...fór matarræðið bara í eitt stórt FUCK...en hefði getað verið verra ef við eigum að horfa á björtu hliðarnar...:/ En sunnudagurinn var alvega svona 95% réttur....
Dröööööslaðist á lappir kl. 6 í morgun...er búin að ætla byrja lyfta veit ekki hvað lengi...en tók 35 brennslu og lyfti smá hendur. Tekst ekki alveg að koma mér í þessa góðu rútinu sem ég var í fyrir áramót. Nú er ég að fara til RVK á fimmtud og verð fram á þriðjud...svo erfitt að fara að heiman...þá fer allt í rugl. Er að hugsa um að taka með mér líkamsræktardótið og kannski kíkja í spinning eða eitthvað með fröken UB og svo verður mar bara að vera áskrifandi í fæði hjá Nings!!;)
En vona að vigtin fari niður...vantar svoleiðis booozt!! Verð að vera duglegri að hreyfa mig!!
UA

2 comments:

Anonymous said...

Við erum sem sagt á svipuðu róli. Fór í 2 afmælisveislur. Stóðst freistinguna í fyrra afmælinu en fékk mér skúffuköku, salat og osta í því síðara. Reif mig á lappir í morgun og í ræktina. Það er smá bót í málinu.

Anonymous said...

Ohhhh fórstu á skíði....nú verð ég öfundsjúk!!!!! Þú ert dugleg að vakna svona til að fara í ræktina, gangi þér vel!