Tuesday, January 02, 2007

I´m back

Jæja, þá eru hátíðarnar búnar og fyrsti dagur í rútínu hafinn. Slaufaði DDV matarræðinu í kringum 20. des og líðanin eftir því, stanslausir vindverkir! Líður strax betur í dag að vera komin í rútínuna og farin að borða eftir DDV. Það sem er gott við að ,,missa" sig í matarræðinu er að þá finnur maður hvað manni líður miklu betur líkamlega (og andlega) að borða hollt og reglulega. Hef bætt á mig um jólin og ég finn það á fötunum, birti tölur á morgun og færi tikkerinn til. Maður verður víst að taka ábyrgð á gjörðum sínum, eða réttara sagt áti sínu ;)

Kv. Fröken UB

1 comment:

Anonymous said...

Velcome back!! veit ekki hvort ég þori að birta tölur á morgun!!:o líður eins og ég sé að spriiiiinga!!:S