Wednesday, January 31, 2007

Fröken UB - mínus 16,6 kg

Fröken UB er bara sátt við létting vikunnar, þó það séu ekki nema -500 gr. Kalla það gott miðað við þær tölur sem ég sá á mánudaginn. Helgin var nefnilega nokkuð erilsöm í sambandi við mat. Bauð miss UA og tilvonandi spúsa hennar í mat, það var þó hollur og góður matur. Ekkert svindl þar. Það var ekki svo gott á laugardaginn og sunnudaginn. Fórum út að borða á Einar Ben í tilefni stórafmælis í fjölskyldunni, ég passaði mig þó á því að velja skynsamlega. Smá svindl þó. Svo á sunnudaginn var haldið í afmæli og þá ,,datt" ég í brauðréttina og ostana. Javla! Batnandi konu er best að lifa ekki satt;)

Heildartap:-16,6 kg


Keppnin: -1,5 kg

4 comments:

Anonymous said...

Jú það er satt, þú spýtir bara í lófana og klárar þetta með glæsibrag;)
Það virkar ótrúlega vel að skoða tölurnar og deila niður á vikur og svoleiðis....t.d. hvað ertu búin að léttast að meðaltali á viku síðan þú byrjaðir og svona....hvað eru þá margar vikur eftir....
Gangi þér vel.

Anonymous said...

Já, ég þarf að vera hnitmiðaðri í þessu. Er að hrökkva í gang :)

Anonymous said...

Þú ert svo dugleg stelpa...Takk fyrir okkur...rosalega gott...oooog hollt!!:)

Anonymous said...

Takk fyrir ahugaverdar upplysingar