Friday, October 13, 2006

UA-Grasekkja..

Já..mín verður bara grasekkja um helgina. Freeeeekar fúlt.... Kallinn farinn til Aku í skólann yfir helgina og mín alein heima með 3 grallaraspóa!! JEIIIIIIIIII....En við finnum okkur örugglega eitthvað til dundurs, vona bara að það hætti að rigna..já þetta er orðið gott....takk!!!
En nýi orbinn minn azkoti fínn og ég er vaknaði í gær og dag og tók 45 mín brennslu! :) En hvað er málið með myndirnar sem hafa verið á Bíó rásinni þessa daga...í gær var einhver ægilega sýrð nútíma útgáfa á "þytur í lauf" (Fúsi froskur og fleiri kynjaverur) og svo var pókermon 4 í morgun...hefði kannski átt að rífa strákana á fætur líka og láta þá horfa!!;) Var búin að binda miklar vonir um að hafa gott sjónvarpsefni við æfingu en ég sé að ég verð líklega að vera þurrka rykið af upptökutækinu!!En það sem er í spilum helgarinnar..afslappelsi, tiltekt, dunda sér með strákunum, borða hollan og góðan mat og taka góðar brennsluæfingar!! Og vonandi lekur fitan af mér.... en ekki fýlan yfir einverunni;) Dieting

Kv. UA





2 comments:

Anonymous said...

Gaman að fylgjast með öðrum á svipaðri leið og maður sjálfur. Takk fyrir ráðin, auðvita á maður bara að vera stoltur af sínum matarvenjum og ekki láta segjast.
Gangi ykkur vel, ég mun fygljast með ;)

Anonymous said...

Takk fyrir það :)Gaman að sjá að einhver les.