Monday, November 27, 2006

UB - Jólahlaðborð

Fórum á jólahlaðborð á laugardagskvöldið með vinahópnum og ég var löngu búin að ákveða að ég mætti fá mér almennilega að borða og rauðvín með. Ég stóð við það, góður matur og góður félagsskapur. Var þó mjög meðvituð um það sem ég var að láta ofan í mig, leyfði mér að smakka á öllu en borðaði í minna mæli en áður. Fékk ekkert samviskubit. Fékk hins vegar samviskubit á sunnudaginn þegar við hjónaleysi stormuðum á KFC í þynnkunni! Ég sem sagt svindlaði um helgina, í fyrsta skipti síðan í ágúst. Það þýðir ekkert að vera að vola yfir því, bara vera dugleg í matarræðinu í vikunni. Þori þó ekki að stíga á vigtina fyrr en á miðvikudag, þá kemur sannleikurinn í ljós ;)

Fröken UB

4 comments:

Anonymous said...

Þú ert búin að vera svo hrikalega dugleg!! trúi ekki að smá hliðarspor hafi alvarlegar afleiðingar!!;) Hvað er smá KFC milli vina...:o

Anonymous said...

Já, ég vona að frú Viktoría refsi mér ekki mikið...

Anonymous said...

Þetta kalla ég nú bara smá hliðarspor...þýðir ekkert að harma það, bara horfa fram á veginn og brosa!

Anonymous said...

Já, það þýðir ekkert annað :)