Wednesday, November 15, 2006

UB Dagur 90. Mínus 14 kg

Léttingur vikunnar var -400 gr. Það verður ekki annað sagt en að ég sé samkvæm sjálfri mér. Búin að missa 400 gr í hverri viku síðustu fjórar vikurnar. Hef ekki komist mikið í ræktina síðan í síðustu viku. Tók reyndar vel á því laugardag og sunnudag. Ræktin vill verða útundan þegar maður er í 100% vinnu og 40% mastersnámi. Verkefni og próf í síðustu viku. Það fer að sjá fyrir endann á verkefnunum og þá verður engin miskunn í ræktinni.

En leiðin er rúmlega hálfnuð :)

2 comments:

Anonymous said...

Ohhh...ég öfunda þig af hvað þú ert stapil! Gengur svo vel hjá þér!!:) nú verð ég að rífa mig upp á rassgatinu og taka mig á!!:/

Anonymous said...

Frábært, þú ert meira en hálfnuð, glæsilegt!