Wednesday, November 22, 2006

UB dagur 97. Mínus 15,4 kg

Í fyrsta skipti á ævinni er ég fegin að vera ekki samkvæm sjálfri mér, því þá hefði ég misst 400 gr í vikunni. Raunin varð -1,4 kg og því eru 15,4 kg farin síðan 9. ágúst. Er mjög lukkuleg með það. Nú eru -300 gr eftir í jólatakmarkið sem er 85 kg. Það mun nást og þá ætla ég að verðlauna mig með skóm. Reyndar eru 2 jólahlaðborð framundan í nóvember og fleiri veislur en maður er vonandi orðinn það matmeðvitaður að það ætti ekki að skaða mikið.

5 comments:

Anonymous said...

Wunderbar!!!!!!!!!!!!:D getur nú bara farið með góðri samvisku á jólahlaðborð!! Til hamingju!! ekkert smá stutt í jólamarkmiðið og það er mánuður í jólin!!:)

Anonymous said...

Vá, til lukku! Það er aldeilis að þið stöllur eruð að taka þetta með trompi;)

Anonymous said...

Já, við erum duglegar þegar við tökum okkur til :)

Anonymous said...

takkfyrir innlitið á síðuna mína og kveðjuna. Til hamingju með frábæran árangur vonandi að þetta gangi áfram svona vel hjá þér
kveðja Bjalla67

Anonymous said...

Takk fyrir það :)