Wednesday, November 01, 2006

UB - dagur 76. Mínus 13,2 kg

Ekki mikill léttingur þessa vikuna, -400 gr. Vissi það svo sem, ekki búin að vera dugleg í ræktinni og þetta mánaðarlega kíkti einnig í heimsókn. Það er þó betra að minnka um 400 gr en að bæta þeim á sig, myndi halda það. Maður verður að taka Pollýönnu á þetta.

Reif mig upp í morgun og lyfti, tók efri hlutann fyrir. Gat varla sett á mig maskara í morgun því ég titraði svo mikið í höndunum. Hef greinilega tekið eitthvað á :) Morguninn byrjaði reyndar ekki vel. Stillti klukkuna á 06:25 og brunaði upp í Baðhús. Fattaði þegar ég steig út úr bílnum að ég gleymdi skónum heima! Brunaði því aftur heim, sótti þá og af stað aftur. Í ræktina ætlaði ég!

Á 3 kg eftir í jólatakmarkið. Ætla að vera búin að létta mig um 16 kg fyrir jól, hef fulla trú á því að það takist. Skal, get og vil :)

4 comments:

Anonymous said...

Ég hef fulla trú á þér!! mig langar nú rosalega að vera búin að losna við 3,8 kg í viðbót fyrir jól!! við töluðum alltaf um GÆS í íþróttunum í "gamla daga";) Get, Ætla, skal...

Anonymous said...

Iss, þú rúllar þessu upp fyrir jól! Gangi þér vel

Anonymous said...

Takk, já ég tek GÆS-ina á þetta;)

Anonymous said...

Takk fyirir ráðin. Við verðum bara að muna að, kemst þó hægt fari.
Til hamingju með árangurinn.
kv. missbig