Wednesday, April 25, 2007

Fröken UB - mínus 14,3 kg

700 gr læddust á mig þessa vikuna. Kemur mér ekkert á óvart. Fékk mér vel í aðra tána um helgina og svo er þetta mánaðarlega að koma í heimsókn. Hreyfingin er í ágætis málum og ég er ægilega bjartsýn á framhaldið. Er alveg að fara að finna blessaðan viljastyrkinn. Kemur kannski til af því að við erum að fara til Kanarí í sumar og það er skemmtilegra að vera bikinífær þá! Markmiðið er að losa mig við 8 kg fram í ágúst. GÆS!!



Baráttukveðja, UB

7 comments:

Anonymous said...

Þú tekur á því núna, einbeitir þér að þessu....

Anonymous said...

Alla trú á þér gæskan!!;) Þú verður að koma kíkja á mig í íþróttahúsið um helgina!!:)

Anonymous said...

jebbs, geri það. Gott að losna aðeins frá próflestri;)

Anonymous said...

Þetta kemur hjá þér, en það er þó betra að vita upp á sig skömmina. Gángi þér vel vinan og ég hef fulla trú á að þú verðir búin að taka þetta og meira til eftir viku :D

Anonymous said...

Gangi þér vel .. finnst þetta glæsilegur árangur hjá þér.

Kv.Ásta

Anonymous said...

Takk fyrir peppið, gott að eiga hauka í horni :)

Anonymous said...

Miðað við aðstæður þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af þessum 700 gr. Engin raunveruleg þynging miðað við kringumstæður ;) Geggjað að hafa Kanarí fyrir augunum sem markmið :D Gangi þér vel :)