Wednesday, April 22, 2009

UB - vika 1

Vegferðin er hafin. Bíllinn hikstar smá í byrjun á meðan maður er að koma nýja matarræðinu inn í rútínu, en svo á þetta eftir að renna smurt. Einnig er ég að glíma við mötuneytið í hádeginu en það hefur gengið bara nokkuð vel. Afrakstur fyrstu vikunnar er að 2,3 kg láku af. Ég hef ekki haft tækifæri til að henda mér í ræktina, en það kemur með hækkandi sól og betri skipulagningu. Ég ætla mér að losa mig við 10 kg í fyrstu lotu. Ætli fyrsta lotan standi ekki fram í lok júní. Já, segjum það: 10 kg verða farin af í lok júní!



Kv. UB

2 comments:

FrökeninX2 said...

Frábært!!!:) Það er gott að fá gott start svo mar gefist ekki upp!!:) við mössum þetta......;)

UB said...

Já, heldur betur :)