Thursday, September 20, 2007

Fröken UB - mínus 4,1 kg

Eitt kíló kvaddi kroppinn í vikunni. Get ekki sagt að ég gráti það ;) Mataræðið er að komast í fastar skorður og hr. sjálfsagi er allur að koma til. Héldum matarboð í vikunni og ég stóðst allar freistingar, 1-0 fyrir mér. Hreyfingin er líka í góðum málum. Fer 4-5 x í viku og fæ útrás. Stikkorða blogg í dag...




P.s. Fröken UA, hvernig gengur hjá þér?

Baráttukveðja, UB

4 comments:

Anonymous said...

Alveg er þetta frábært hjá þér!!!:D Ég vil sem minnst segja um mig..æfi og æfi...en þyngist og þyngist!! ég er í fýlu og neita að tjá mig um málið!!;)

Anonymous said...

flott hjá þér skvísa!
Rennur af þér lýsið! haha
Gangi þér áfram svona vel!
kv
mimzy

Anonymous said...

Frábært! Þetta gengur vel;)

Anonymous said...

Vá hvað tíminn flýgur.. alltof langt síðan ég hef kíkt við. Til hamingju með burtflogið kíló. Vonum að það hafi farið sem allra, allra lengst út í buskann og komi aldrei aftur ;) Gangi þér áfram svona vel :D