Friday, October 19, 2007

Fröken UB - mínus 4,1 kg

Þetta hefur verið fremur erfiður mánuður matarlega séð, eða frekar veislulega séð. Held að ég hafi farið í 9 veislur í það sem af er mánuði; afmæli, saumaklúbbar og hittingar. Ég er samt stolt af því að ég þyngdist ekki. Náði að halda í horfinu og er bara nokkuð hreykin af mér. Var dugleg að hreyfa mig og meðvituð um það sem ég var að láta ofan í mig. Núna verður hreyfingin tekin með trompi og ég ákvað að fara í einkaþjálfun í 6 vikur ásamt vinkonu. Jájá, þetta kemur allt...

Góða helgi!


5 comments:

Anonymous said...

Im back baby.... Jæja núna er að duga eða drepast... ik?

Glæsilegt að halda sér í svona aðstæðum, þetta er sko alveg hægt.. þú ert búin að sanna það.

Baráttukveðja

Anonymous said...

Já, núna er að duga eða drepast

GÆS!

Anonymous said...

Frábært hjá þér! Munar svo miklu þegar maður getur verið meðvituð um hvað fer upp í munn og ofan í maga :)

Anonymous said...

Já, það er sko enginn sem dregur mann upp úr svaðinu nema maður sjálfur...

takk fyrir kvittið

Anonymous said...

jæja... hvernig gengur