Tuesday, August 07, 2007

Sumarið er tíminn....

sem ég hrúga á mig aukakílóum ár eftir ár....og svo eyði ég vetrinum í því að ná þessu af aftur. Er þetta eðlileg hegðun???? Gooood manni er ekki viðbjargandi!! :/ Nú er ég búin að hrúga á mig örugglega helmingin af þessum 15 kg sem ég tók af síðast vetur og stend hér og horfi bitur í spegilinn!! Já ég er asni...afhverju hefur maður ekki vit á því að halda sér á beinu brautinni og svona aðeins halda í við sig. Nei enn og aftur stend ég í þeim sporum að vera búin að missa mig gjörsamlega og hef ekki fundið mojoið að taka mig saman í andlitinu. Veit ekki alveg hvar ég á að byrja.....:O
ENNNN..... ég ætla að reyna byrja einhversstaðar.... Markmið vikunnar!! 1. Hreyfa mig eitthvað á hverjum degi 2. Ætla að vigta matinn ofan í mig máltíðar. 3. Ætla ekki að borða nammi eða snakk. Já best að byrja á þessu og sjá hvernig það gengur....Ætla að borða eins mikið af ávöxtum og ég þarf meðan ég sykurdetoxa mig. Mánud. 13. ágúst ætla ég svo að byrja 100 % DDV aftur...ohhhhhhh vildi að ég hefði aldrei hætt!!!:S Vildi að ég gæti sparkað í rassinn á sjálfri mér því ég á það skilið!!;) Við UB ætlum svo að senda hvor annarri nákvæma lýsingu af því sem við gerðum um daginn. JÁ ég segi fitupúkanum AFTUR....stríð á hendur....

Kv. UA

4 comments:

Anonymous said...

Er ný í þessu og langar að fylgjst með ef ég má.

En þú veist greinilega hvað þarf að gera, bara halda því áfram go finna svo leið til að halda sér við.

Gangi þér rosalega vel.

Anonymous said...

Rétt hjá þér.. bara herja á fj.. púkann.. hann skal ekki sigra :D Gangi þér (og ykkur) vel. Nú fer ég að fylgjast reglulega með bloggfélögunum mínum aftur.

Anonymous said...

Já það er allt svo miklu auðveldara þegar rútínan er komin á, skólarnir byrja og útilegutíminn búinn;) Gangi okkur öllum vel í vetur!

Anonymous said...

Og ég er komin aftur.. ! Hvað er að frétta?