Saumó lukkaðist bara vel held ég...ég tilkynnti þeim að ég væri í aðhaldi og hefði ákveðið að þær yrðu það líka!!;) Voru allir ánægðir með það...það virðist sem við konurnar séum í eilífðar aðhaldi. En var með þetta bara nokkuð einfalt... osta, pestó og allskonar kex, eplaköku og DDV ís ( finnst hún svooo góð), rúllaði upp tortillum og skar í búta með fersku spínati, skinku, papriku eða tómat og smurði með hvítlauksrjómaosti. Svo var ég með stóra skál af allskonar ávöxtum ferskum ananas, vínberum, jarðaberum og melónu. Þetta var bara voða hollt og gott allt saman...:)
En ekkert plan um helgina og er ég svoooooo ánægð með það er doltið þreytt eftir þessa viku og búin að sofa frekar lítið. Fór m.a seint að sofa í gær út af saumó..vaknaði svo kl. 5:30 við það sem ég hélt að væri grátur en neiiiiiii....fann son minn hlæjandi fyrir framan cartoon network...HAAAAALLÓ!!:s Svo vaknaði þessi yngsti kl. 6:30...Mjá..hef sofið meira skal ég segja ykkur. Jæja eigið góða helgi og stefnan tekin á EKKERT...sukk um helgina. Skal léttast næst!!! DJÖÖÖÖÖÖÖ....;)
Kv. UA
Friday, February 09, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Flottur saumó! Svona tortillur eru mjög spennandi þykir mér......
Flott hjá þér :D Held einmitt sjálf saumó bráðlega og líst vel á þessa lýsingu :D Það er rosalega langt síðan ég kíkti hingað inn en þið eruð báðar að standa ykkur vel :) :) Skellti tenglinum ykkar inn hjá mér (skil ekkert í því að hann skyldi ekki vera þar!?)
Best of luck
ohhh langar svo að hafa einhvern til að borða með. Hundleiðinilegt að borða einn :(
Berjumst .....
Post a Comment