Wednesday, February 14, 2007

Fröken UB - Mínus 17,10 kg

Blessuð vigtin fór upp um 500 gr. Byrjaði á blæðingum í gær og það þyngir mann alltaf, þannig að ég er alls ekkert svo ósátt. Matarræðið er búið að vera í fínu lagi, ekki mikið svindlað. Fyrir utan föstudagskvöldið en þá fékk ég mér nokkur hvítvínsglös í tilefni afmælis. Sé ekki eftir því, ótrúlega skemmtilegt kvöld. Maður hættir ekki að lifa þó maður þurfi stöðugt að berjast við vigtina. Næstu 2 vikur fara í það að halda mér í horfinu, sumarbústaður og þorrablót vinahópsins um helgina og svo ætlar heittelskaður að bjóða mér í helgarferð til London næstu helgi (23. feb). Svo verður þetta tekið með trompi!


Heildarþyngdartap: -17,10 kg



Keppnin: -2 kg


Eigið góðan dag.

1 comment:

Anonymous said...

Já..það má ekki gleyma því að vera til..innan "skynsamlegra" marka!!;) En pældu 17,1 kg!! Ef ég mundi láta þig halda á yngsta stráknum okkar þá væri það þín létting...munar ekkert smá að vera laus við svona þyngd!!!:)