Wednesday, February 21, 2007

Fröken UB - mínus 17,1 kg

Vigtin stóð í stað og er Fröken UB afskaplega ánægð með það. Kom mér gríðarlega á óvart, var búin að búa mig undir þyngingu. Vorum í sumarbústað ásamt vinum alla helgina og ég tók ekki matarvigtina með. Réttara sagt, tók vigtina með en hún var niðri í tösku alla helgina. Ég leyfði mér að fá mér hvítvín og borða það sem mig langaði í. Fékk mér þó ekki nammi né kók. Var mjög meðvituð. Svo er það bara London á föstudag og svo er það harkan sex eftir helgi.

best að rjúka á fund.
Góða helgi...

7 comments:

Anonymous said...

Gott mál gott mál!! GÓÐA SKEMMTUN..í London!!:D leiðinlegt að geta ekkert hitt þig! En við verðum afslappaðar og fínar eftir næstu helgi!!:)

Anonymous said...

Frábært að þyngjast ekki, sérstaklega ef maður hefur búist við því. Góða skemmtun í London, þú tekur á því eftir helgi.

Anonymous said...

Gott að viktin fór ekki upp og betra er að hún standi í stað. Gángi þér vel og góða ferð til London :)

Anonymous said...

ég á þetta hér fyrir ofan ég kann ekki allveg á þetta :)
kv. Assa

Anonymous said...

ÆÐI innilega til hamingju.

Anonymous said...

púff.. var að koma heim af smá sukki....
Gangi ykkur vel og góða helgi!

Anonymous said...

Frábært að vigtin stendur í stað. Vona að þú skemmtir þér rosalega vel í London.